Hraðar greiðslur.
Hafðu fulla stjórn.
Veldu sýndarkort
Sýndarkort er fullkomlega stafrænt greiðslukort sem virkar nákvæmlega eins og hefðbundið plastkort, nema hvað það er hraðvirkara, öruggara og auðveldara í umsýslu. Þú getur gefið út kort, notað þau og stýrt öllu ferlinu á netinu — engin bið eftir póstinum og engar áhyggjur af glötuðum kortum eða kortasvikum.

Hefðbundin kort
hægja á þér
Hvort sem þú sérð um kostnaðarstýringu, rekur auglýsingareikninga eða greiðir fyrir erlendar hugbúnaðarlausnir — þá þarftu sveigjanleika, ekki flækjur.
Sýndarkort á
þínum hraða
Sýndarkort Wallester eru hönnuð til að einfalda greiðslur, koma í veg fyrir umframeyðslu og vaxa í takt við fyrirtækið þitt. Fyrir fyrirtæki þýða sýndarkort tafarlausan aðgang að fjármunum, einfaldara bókhald og minni áhættu. Þú getur rakið hverja einustu greiðslu, stillt úttektarheimildir og hefur fulla stjórn á öllum færslum.
Hvað gerir Wallester
sýndarkort einstök?
Hvort sem þú rekur lítið fyrirtæki eða alþjóðlegan stórrekstur, þá aðlagast sýndarkort Wallester þínum vinnuferlum. Þú færð gagnsæja kostnaðarstýringu, tryggir rekjanleika í bókhaldi og getur stækkað við þig hnökralaust þvert á teymi og markaði.
- Tafarlaus útgáfa korta
Gefðu út kort á nokkrum sekúndum í gegnum vefgáttina eða API — engar tafir og engar handvirkar samþykktir.

- Greiðdu með snjallveskinu
Njóttu frelsisins og greiddu með því stafræna veski sem þér hentar best á örfáum sekúndum.
- Greiddu hvar sem er
Verslaðu á netinu, borgaðu snertilaust í verslunum
eða taktu út reiðufé í hvaða hraðbanka sem er.
- Fullkomlega sérsniðin
Settu útgjaldamörk, stýrðu tegundum söluaðila og stilltu notkunarheimildir — fyrir hvert kort og hvern notanda.
- Ótakmörkuð kort
Gefðu út eins mörg kort og þú þarft,
vöxturinn á sér engin takmörk. - Öryggi sem þú getur treyst
Aukið öryggi þýðir minni áhætta
og öruggari netgreiðslur.
Vantar þig sjálfvirkni?
Við sjáum um málið!
Sjálfvirk útgáfa korta með API-tengingu auðveldar rekstur fyrirtækja sem sýsla með þúsundir færslna daglega, allt frá auglýsingapöllum til fjölbreyttra þjónustufyrirtækja. Þú getur samþætt Wallester beint við þín eigin kerfi og gefið út kort samstundis eftir þörfum.
Kynntu þér forritaskilin okkarEinn vettvangur,
allar kortategundir sem þú þarft
Veldu rétta kortið fyrir hvert verkefni: allt frá stökum greiðslum til birgja yfir í
regluleg útgjöld teymisins. Hver kortategund auðveldar þér kostnaðarstýringu, eykur
nákvæmni og verndar fjármuni fyrirtækisins.
- Fjölnotakort
Settu upp einu sinni, notaðu hvenær sem er
Áskriftir,
innkaup starfsfólks - Einnota kort
Óvirkjast sjálfkrafa eftir notkun
Einskiptiskaup,
birgjar, áhættusöm útgjöld - Sameiginleg kort
Margir notendur, full stjórn
Innkaup fyrir teymið, kaup á
auglýsingum
Sniðið að útgjöldum
þíns fyrirtækis
Sýndarkort umbylta greiðslum og kostnaðarstýringu. Þú getur auðveldlega aðskilið fjárheimildir eftir teymum, verkefnum eða svæðum og færð tafarlausa yfirsýn yfir öll útgjöld.
Byrjaðu að nota sýndarkort
sem laga sig að
þínum rekstri
Þúsundir fyrirtækja treysta nú þegar á sýndarkort frá Wallester til að einfalda reksturinn. Slástu í hópinn í dag og upplifðu hversu einföld kostnaðarstýring getur verið.












